I can recommend you to choose from the best canada hosting or check out my personal and user based inmotion reviews hosting.

VINDORKA

KIANO ehf undirbýr framleiðslu á Vindorkuverum frá 5,5kW að 30kW. Þessar vindmyllur henta vel fyrir Bændur, Verktaka, Sumarbústaði, fyrirtæki eða jafnvel heimili. Framleiðslugeta þeirra er frá 8.000 kW á ári allt að 100.000 kW á ári. 

Hönnunin á vindmyllunum er nýtískuleg, praktísk og auðveldar alla umgengni og framtíða viðhald. Stýrikerfi Vindmyllana er háþróað og uppfyllir allar kröfum um virkni og rekstraröryggi samkvæmt EN 61400-2 staðli.

Vindmyllurnar frá KIANO, möstur og fylgihlutir veröa framleiddar, prófaðar og samsettar á Íslandi úr íhlutum frá virtum og viðurkenndum framleiðendum í Evrópu. Myllurnar munu sækja um CE-vottun og uppfylla allar kröfur sem settar eru á virkjanir vegna  tengingar við rafdreifikerfi.

Vindmyllurnar munu framleiða 400V 50Hz þriggja fasa rafmagn þannig að það er engin þörf á neinum straumbreytum, rafhlöðum né neinum öðrum aukahlutum. Þetta veitir mikið rekstraröryggi og háa virkni. 

Þessi gerð af vindmyllum var fyrst prófuð af sumarið 2000 og virkaði mjög vel án nokkura stærri vandkvæða næstu átta ár meðan á prófunum stóð. Niðurstöður þessara prófana liggja til grundvallar fyrir framleiðslu dagsins í dag. Þessi þróun og hönnunarvinna Hannevind Vindkraft í Svíþjóð auk betrumbætinga gerða af íslenskum sérfræðingum liggur til grundvallar væntanlegri framleiðslu.

Öryggismál eru okkur mikið forgangsmál, hvort sem það snýr að framleiðslu Myllu eða Masturs. Til þess að forðast slys og skemmdir, þá stöðvast vindmyllurnar frá okkur þegar vindur er mikill eða við aðrar óeðlilegar aðstæður. Þetta stýrist ekki af manna völdum, heldur af stýrikerfi Vindmyllunar sjálfrar.

Spaðarnir sem munu verða notaðir eru í endurhönnunarferli þar sem leitast verður við að þeir verði aldrei veikasti hlekkurinn. Sú vinna á sér stað hér á landi.

 

© 2012 Kiano. Allur réttur áskilin.
Kiano ehf | Mánamörk 3-5, 810 Hveragerði | Sími: 4 800 500 | kiano@kiano.is
Joomla 1.7 Templates designed by Business Hosting Reviews